Færsluflokkur: Bloggar

Samtök Iðnaðarins: ,,Hagfelldur aðildarsamningur kann að vera fyrirtækjum og heimilum til mikilla hagsbóta."

Orri Hauksson er framkvæmdarstjóri Samtaka Iðnaðarins Í gærkvöld samþykkti Iðnþing æðsta vald Samtaka Iðnaðarins ályktun þar sem ítrekuð er afstaða samtakanna að klára eigi aðildasamningana. Einnig að þeir telji að góður samningur geti skilað miklum hagsbótum fyrir bæði fyrirtæki og heimili landsins.

Orri Hauksson framkvæmdarstjóri Samtaka Iðnaðarins segir  aðspurður  í Fréttablaðinu í dag ályktunina ekki koma sem viðbragð vegna ummæla formanns Sjálfstæðisflokksins heldur sé eingöngu verið að ítreka afstöðu Samtakanna.  En formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í síðustu viku að hann teldi að draga ætti aðildarumsókn Íslands að ESB til baka.

Ályktunin í heild sinni:

 

Ísland hefur sótt um aðild að Evrópusambandinu. Samtök iðnaðarins telja mikilvægt að umsóknarferlinu sé haldið áfram af fullum heilindum og í náinni samvinnu við atvinnulíf og aðra hagsmunaaðila.

Iðnþing er æðsta vald Samtaka iðnaðarins og hefur undanfarin ár ályktað um Evrópumál. Síðast var lögð áhersla á að ljúka viðræðum og leggja áherslu víðtæka hagsmuni heildarinnar. Hagfelldur aðildarsamningur kann að vera fyrirtækjum og heimilum til mikilla hagsbóta.

Samtök iðnaðarins telja engar líkur til að samningur, þar sem veigamiklum hagsmunum verður fórnað, verði samþykktur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Af þessum sökum er mikilvægt að ljúka ferlinu með það að markmiði að tryggja hagsmuni þjóðarinnar með sem hagstæðustum samningum til langs tíma.


Enga kökubasara á Íslandi - en í fínu lagi í ESB!

 

Dásamlegar kleinur Við hjá Já Ísland elskum kleinur og kruðerí. Þess vegna erum við rasandi yfir því að einhverjum tókst að koma þeirri sögu á kreik að Evrópusambandið bannaði heimabakstur sem ætlaður er til sölu á klassískum kökubasar eða þess háttar. 

 Hið rétta er að það eru íslenska ríkið sem bannar sölu á heimabakstri meira segja þegar bara um er að ræða sölubasar til styrktar ungmennafélaginu eða skólaferðalagi. Um þetta má lesa á vefsíðunni okkar Já Ísland. 

Við vonum auðvitað að þessu verði breytt því fátt jafnast á við góða kleinu. 


Hvað nú? Áhrif fjármálaóstöðugleikans í Evrópu á aðildarviðræður að ESB?

Gylfi Zoëga

 jona_solveig2.jpg

 

 

 

 

 

 

Það er vondur siður að stinga höfðinu ofan í sandinn þegar erfið mál blasa við -og sem betur fer er það ekki siður í Brussel. En nú er unnið hörðum höndum hjá Evrópusambandinu að finna leiðir til að tryggja áframhaldandi stöðugleika í álfunni í kjölfar fjármálaerfileika í heiminum.  

En hvaða áhrif hafa þessar hræringar á aðildarumsókn Íslands? hvernig stendur evran í samanburði við íslensku krónuna?, hvernig gengur leiðtogum aðildaríkjanna að takast á við ástandinu?, hverjar eru hugsanlega breytingar sem gætu orðið á Evrópusambandinu í kjölfarið? - þessum spurningum og fleiri verður svarað á þessum áhugaverða fundi á vegum Já Ísland í næstu viku: 

 p0124910006.jpg

Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands ræðir áhrif fjármálaóstöðugleikans í Evrópu á hagsmuni Íslands og á aðildaviðræður okkar við ESB.

Jóna Sólveig Elínardóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur, ræðir áhrif á stjórnmálasamstarf ríkjanna innan ESB í tengslum við breyttar aðstæður.

Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 18. ágúst í fundasal Já Íslands í Skipholti 50a, 2 hæð og hefst kl 20.


Góður tími verður fyrir fyrirspurnir og almenna umræðu fundamanna.

Allir eru velkomnir á fundinn!

 

Viðburður á Facebook


150 milljarðar evra í menntamál

.. það skiptir gífurlega miklu máli að hlúa vel að skólum landsins og það er hægt að gera með margvíslegum hætti.  Flestir kennarar á Íslandi hafa verið þátttakendur í Evrópusku samstarfsverkefni eða þekkja vel til þannig verkefnis innan síns skóla.   En nýverið skrifaði Ágúst Hjörtur Ingþórsson grein um hvernig samstarfið sem við höfum haft aðild að, í gegnum EES hefur skilað gífurlegum fjármunum í formi verkefna og styrkja til íslenskra nemenda og kennara. Nú hefur verið samið um þennan hluta í aðildarviðræðunum og loksins geta Íslendingar fengið sæti við borðið sem ákveður hvert þessir styrkir fara - og þá líka haft áhrif á í hvernig verkefni þeir fara.  

 

Ágúst bendir á í greininni að Íslendingar hafi fengið 10 milljarða umfram það sem þeir hafa lagt í sjóðinn - enda hafa mörg frábær verkefni verið styrkt hér á landi með þessum hætti, allt frá gerð fræðslutölvuleikja fyrir börn upp í bangsaskiptinema sem fara á milli leikskóla og kynna börnin fyrir mismunandi menningu ríkjanna. 

Mælum eindregið með greininni sem lesa má hér.


Bubbi: ,,Krónan er mesti bölvaldur Íslandssögunnar - punktur"

 
Sjá fleiri Íslendinga fjalla um skoðun sína á Evrópusambandinu á vefnum Þjóð.is

Áskorun - stöndum saman

askorun2-1024x582 Við skorum á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að standa af heilindum að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu sem meirihluti landsmanna styður. Til þess að þjóðin megi njóta fjölmargra kosta fullrar aðildar þarf að ná samningi sem tryggir framtíðarhagsmuni Íslendinga sem fullvalda og sjálfstæðrar þjóðar. Efnahagslegur stöðugleiki, lægri vextir, afnám verðtryggingar, lægra matvælaverð og þátttaka í ákvörðunum um eigin örlög er meðal grundvallarkosta aðildar.

 

Við viljum að aðildarsamningur tryggi meðal annars eftirfarandi:

• Íslendingar fái aðgang að öllum stofnunum ESB og verði fullgildir þátttakendur við allar ákvarðanir

• Íslendingar geti tekið upp evru sem allra fyrst

• Neytendur fái notið lægra verðs matvæla með afnámi tolla

• Neytendur hafi frelsi til að kaupa vörur og þjónustu án hindrana eða aukagjalda frá öllum ríkjum ESB, t.d. með netverslun

• Efnahagslegur ávinningur Íslendinga af auðlindum hafsins verði áfram tryggður

• Verndunarsjónarmiða verði gætt þannig að náttúruauðlindir Íslands nýtist framtíðarkynslóðum Íslendinga

• Íslendingar haldi fullum yfirráðum yfir orkuauðlindum sínum

• Markviss stuðningur við dreifðar byggðir verði tryggður

• Íslendingar hafi frelsi til að styðja landbúnað

• Íslenska verði eitt af opinberum tungumálum ESB

• Ísland verði ávallt herlaus þjóð og Íslendingar þurfi aldrei að gegna herskyldu

 

Samninganefnd Íslands gengur nú til eiginlegra samningaviðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu

í samræmi við ákvörðun Alþingis. Við óskum henni alls hins besta í erfiðu verkefni og hvetjum alla landsmenn til þess að standa þétt að baki henni og veita henni stuðning og aðhald til þess að hún nái sem bestum árangri.

Það er sameiginlegur hagur okkar allra


Fögnum saman upphafi aðildaviðræðna í kvöld

karlinn2-995x1024Í dag hefjast aðildaviðræður Íslands við Evrópusambandið formlega og af því tilefni ætla Evrópusinnar að fagna saman í kvöld.

Fögnuðurinn hefst kl 20.30 á B5 sem er á Bankastræti 5 í Reykjavík - og munu Mið- Ísland bræðurnir Bergur Ebbi og Dóri DNA segja örfá orð.  Sérstakt tilboð verður svo á barnum. 

Hlökkum til að sjá alla Evrópusinna.


mbl.is Aðildarviðræður hafnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað í ósköpunum hefur Evrópusambandið gert fyrir íbúa ESB?

.. sér í lagi fyrir Breta?  þeir segja þér frá því hér.. 
 

Aðildasinnum fjölgar og nei-sinnum fækkar!

islandsk_flag.jpgÍ dag birtist á Mbl.is frétt um nýja könnun sem Capacent gerði fyrir andstæðinga aðildar að ESB. Könnunin mælir fylgi við aðild að ESB og er skemmtilegt að segja frá því í henni í ljós að þeir sem ætla að segja já við aðild að ESB fjölgar um tæp 4 prósentu stig og þeir sem eru á móti hefur fækkað sömuleiðis um fjögur prósentu stig.

Í nýrri könnun kemur fram að þeir sem ætla að segja já við aðild eru nú 42,7% en voru í fyrri könnun 38.9%.  Þeir sem nú gefa sig upp sem andsnúna aðild eru nú 57,3% en voru í febrúar á þessu ári 61,1%.

Formlegar samningaviðræður milli ESB og Íslands hefjast í lok mánaðarins og því ljóst að enn fleiri Íslendingar munu taka þátt í umræðunni um ESB og mögulega aðild á næstunni.  Við hjá Já Ísland hlökkum til að taka þátt í þeirri um ræðu og eru fullviss um að fleiri munu koma í hóp jákvæðra á næstunni.

Gleðilegan þjóðhátíðardag!

 

 

Könnun Heimssýnar eins og hún birtist í frétt á mbl.is fyrr í dag:
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/06/16/57_3_prosent_segjast_andvig_esb_adild/
Könnun Samtaka Iðnaðarins frá því í febrúar á þessu ári:

http://www.si.is/media/althjodlegt-samstarf/Evropukonnun-feb2011.pdf

 


mbl.is 57,3% segjast andvíg ESB aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eflum sjálfstæði okkar

det_islandske_flag.jpgÍ dag talar enginn gegn því að vera í EES ekki einu sinni andstæðingar ESB aðildar - samt sem áður tökum við upp stóran hluta löggjafar ESB sem er samin alfarið í Brussel, án þess að við eigum þátt í því að semja þau lög! Þetta gera sér ekki allir grein fyrir og svona til að toppa þetta þá var það Davíð Oddsson sem innleiddi flestar ESB tilskipanir vegna EES samningsins í tíð sinni sem forsætisráðherra.  Hann er sannkallaður aðlögunarkóngur! 

 Eins og Baldur Þórhallsson benti á, á alþingi í dag er EES samningurinn mun ólýðræðislegri en hefðbundinn aðildarsamningur að ESB.  Og með því að ganga í ESB  þá aukum við sjálfstæði okkar með því að taka þátt í því að semja lögin sem við þurfum að lúta með hinum 27 löndunum.  Þannig tryggjum við sjálfstæði okkar með því að fá sæti við borðið þar sem fulltrúar landanna 27 (þar af 21 smáríki) komast að sameiginlegum ákvörðunum. 

 

Hér er fullt fullt af skemmtilegum viðtölum við fólk frá öllum landshornum sem segja afhverju þau trúa á að aðild muni vera okkar þjóð til gagns. 

Þjóð.is 

 

 

 


mbl.is Nýtum ekki tækifærin innan EES
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband