Samtök Iðnaðarins: ,,Hagfelldur aðildarsamningur kann að vera fyrirtækjum og heimilum til mikilla hagsbóta."

Orri Hauksson er framkvæmdarstjóri Samtaka Iðnaðarins Í gærkvöld samþykkti Iðnþing æðsta vald Samtaka Iðnaðarins ályktun þar sem ítrekuð er afstaða samtakanna að klára eigi aðildasamningana. Einnig að þeir telji að góður samningur geti skilað miklum hagsbótum fyrir bæði fyrirtæki og heimili landsins.

Orri Hauksson framkvæmdarstjóri Samtaka Iðnaðarins segir  aðspurður  í Fréttablaðinu í dag ályktunina ekki koma sem viðbragð vegna ummæla formanns Sjálfstæðisflokksins heldur sé eingöngu verið að ítreka afstöðu Samtakanna.  En formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í síðustu viku að hann teldi að draga ætti aðildarumsókn Íslands að ESB til baka.

Ályktunin í heild sinni:

 

Ísland hefur sótt um aðild að Evrópusambandinu. Samtök iðnaðarins telja mikilvægt að umsóknarferlinu sé haldið áfram af fullum heilindum og í náinni samvinnu við atvinnulíf og aðra hagsmunaaðila.

Iðnþing er æðsta vald Samtaka iðnaðarins og hefur undanfarin ár ályktað um Evrópumál. Síðast var lögð áhersla á að ljúka viðræðum og leggja áherslu víðtæka hagsmuni heildarinnar. Hagfelldur aðildarsamningur kann að vera fyrirtækjum og heimilum til mikilla hagsbóta.

Samtök iðnaðarins telja engar líkur til að samningur, þar sem veigamiklum hagsmunum verður fórnað, verði samþykktur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Af þessum sökum er mikilvægt að ljúka ferlinu með það að markmiði að tryggja hagsmuni þjóðarinnar með sem hagstæðustum samningum til langs tíma.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snorri Hansson

Æðsta vald !!?

Snorri Hansson, 19.8.2011 kl. 14:09

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það eru engin "heilindi" að halda áfram umsókn sem þjóðin gaf aldrei samþykki sitt fyrir kosningar og hefur ekki gert eftir þær. Ríkisstjórnin felldi tillögur um að láta kjósa um umsóknina ... vitandi það, að hún hefði verið felld af almenningi. Í Gallupkönnun birtri 10. júní 2009 (sjá HÉR!) kom í ljós, að 76,3% vildu þjóðaratkvæði um umsóknina sjálfa, en aðeins 17,8% vildu það ekki (5,8% hlutlausir). Það var ekki farið eftir þessum þjóðarvilja; heilindin í stjórnarráðinu voru ekki meiri en svo.

Jón Valur Jensson, 20.8.2011 kl. 06:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband